Flýtilyklar
Tennis- og badmintonfélag Akureyrar
Tennis- og badmintonfélag Akureyrar heldur úti badmintonæfingum fyrir börn og unglinga. Badminton veitir góða alhliða hreyfingu sem auðvelt er að læra og er íþróttagrein sem hentar öllum. Badminton snýst um tækni, útsjónarsemi, snerpu og úthald.
Badminton er íþrótt fyrir alla - líka þig!
Nýjustu fréttir
-
Sjö keppendur frá TBA á RIG
fimmtudagur 26.jan.12 15:26 - Lestrar 11 - Athugasemdir (0)Síðastliðna helgi fóru 7 keppendur frá TBA ásamt þjálfara og fararstjóra. Stóðu TBA-ingarnir sig með ágætum og komst Róbert Atli Didron lengst keppenda TBA eða í fjórðungsúrslit í einliðaleik, aukaflokki í U15.
TBA krakkarnir kusu Róbert besta spilarann innan sinna raða á mótinu og tekur hann því við lukkudýri TBA, "TBA stubbnum" úr höndum Péturs Más Guðmundssonar, sem fékk TBA stubbinn á síðasta móti.
Myndir frá ferðinni er að finna hér og öll úrslit mótsins hér.
Einnig er hægt að lesa ferðasögu frá mótinu hér sem Krista skrifaði.
-
Deildakeppni BSÍ 3.-5. febrúar-síðasta skráning 25. jan.
mánudagur 23.jan.12 00:43 - Lestrar 16 - Athugasemdir (0)Deildakeppni BSÍ verður haldin 3.-5. febrúar nk. Ekki er reiknað með að landsbyggðarlið byrji að spila fyrr en á laugardeginum. Aldurstakmark er 17 ára (árið gildir).
Keppni tveggja liða eru samtals 7 leikir sem hér segir:
- 2 einliðaleikir karla í styrkleikaröð.
- 2 tvíliðaleikir karla í styrkleikaröð.
- 1 tvíliðaleikur kvenna.
- 2 tvenndarleikir í styrkleikaröð.
Sigur í hverri keppni gefur 1 stig. Leikmannafjöldi þarf að vera að lágmarki fjórir karlar og tvær konur.
Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir TBA í Deildakeppni BSÍ, vinsamlegast sendið þátttökutilkynningu í tölvupósti (eða hringið í 847-6939) til Kristjáns Péturs á kristjanpetur@hotmail.com í síðasta lagi miðvikudaginn 25. janúar.
-
Landsbankamót ÍA-síðasta skráning 3. feb.
mánudagur 23.jan.12 00:21 - Lestrar 16 - Athugasemdir (0)Unglingameistaramót Badmintonfélags Akraness og Landsbankans verður haldið í íþróttahúsinu við Vesturgötu helgina 11. – 12. feb. n.k.
Keppt verður í aldursflokkunum U13 til U19. Keppt verður í öllum greinum. Aukaflokkur verður í einliðaleik.
U-13 og U-15 keppa á laugardeginum 11. febrúar og hefst keppni þá klukkan 10:00.
U-17 og U-19 keppa á sunnudeginum 12. feb. og hefst keppni kl. 10:00.
Mótsgjöld eru 1200 kr. í einliðaleik og 1000 kr. í tvíliða- og tvenndarleik.
Foreldrar krakka vinsamlegast sendið þátttökutilkynningu í tölvupósti (eða hringið í 847-6939) til Kristjáns Péturs á kristjanpetur@hotmail.com í síðasta lagi föstudaginn 3. febrúar.
Heimsóknir
Samtals: 122834